Mercator Media stendur fyrir Íslensku sjávarútvegssýningunni, þeirri umfangsmestu í norðurhluta álfunnar. Það er fyrirtækinu mikil ánægja að tilkynna að sýningin árið 2011 verður haldin dagana 22. til 24. september 2011 í Smáranum í Kópavogi.
Þrátt fyrir efnahagsörðugleika þótti bæði sýnendum og gestum mjög vel til takast með Íslensku sjávarútvegssýninguna 2008, þá níundu í röðinni. Hún var haldin dagana 2. til 4. október í Smáranum í Kópavogi og nær 500 sýnendur frá 33 löndum sýndu allt það nýjasta í tækni og afurðum. Alls komu 12.429 gestir frá 50 löndum og rúmlega 75 sérlega boðnir fulltrúar hvaðanæva að, þar með talið frá Ekvador og Kanada. Sýningin var formlega sett á fimmtudagsmorgni af Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra með skoti úr 140 ára gamalli fallbyssu!
Íslenski umboðsaðilinn Eltak hefur sýnt vogir og vigtunarbúnað á Íslensku sjávarútvegssýningunni síðan árið 1984 og Jónas Ágústsson, framkvæmdastjóri Eltaks, hafði þetta að segja: „Eltak fékk margar pantanir þrátt fyrir efnahagsástandið. Enn er verið að gera samninga við viðskiptavini sem koma á bás okkar og vilja kaupa vigtunarbúnað og flokkara frá Marel, gátvogir og leitartæki frá breska fyrirtækinu Loma og pökkunarbúnað fyrir neytendaumbúðir frá Soco í Danmörku. Við erum mjög ánægðir með sjávarútvegssýninguna.”
Sýningin var þó ekki bara þriggja daga vinnutörn frá morgni til kvölds. Fyrsta kvöldið var haldin móttaka og Íslensku sjávarútvegsverðlaunin afhent en þar voru 13 vinningshafar, bæði íslenskir og erlendir, heiðraðir fyrir einstakt framlag sitt til fiskveiði og sjávarútvegs. Föstudagskvöldið var svo haldin stórveisla þar sem um 500 manns dönsuðu og skemmtu sér fram á nótt við undirleik Bógómíls Fonts og Milljónamæringanna.
Íslenska sjávarútvegssýningin var fyrst haldin árið 1984 og er ein merkasta sýning heims á sviði fiskveiða og sjávarútvegs. Hún er haldin á þriggja ára fresti og vekur jafnan mikla eftirvæntingu og athygli sýnenda og gesta. Á sýningunni er að finna alla mikilvægustu þættina sem varða fiskveiðar og sjávarútveg, allt frá hönnun og smíði fiskiskipa og tæknibúnaðar af öllu tagi til fiskveiða og -vinnslu um borð til fiskvinnslu og pökkunar sjávarafurða í landi. Marianne Rasmussen er framkvæmdastjóri sýningarinnar. Hún sagði að á erfiðleikatímum væri uppörvandi að verða vitni að jafn jákvæðri afstöðu og raun ber vitni hjá bæði sýnendum og gestum en allir sýndu mikla fagmennsku alla þrjá daga sýningarinnar. „Við höfum þegar hafið undirbúning fyrir sýninguna árið 2011 og hlökkum til þess að fagna ykkur öllum á ný eftir hálft þriðja ár.”
|