 |
 |
 |
Sýningin opnuð með hvelli Íslenska Sjávarútvegssýningin 2008 var opnuð formlega í Smáraskóla í Kópavogi í morgun. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði við opnunina að sýningin væri ekki aðeins mikilvæg fyrir íslenskan sjávarútveg heldur fyrir greinina á alþjóðavísu. Sýningin væri góður vettvangur til að hittast, eiga viðskipti, bera saman bækur sínar og styrkja vinabönd og viðskiptasambönd. Gunnar Birgisson borgarstjóri sagði það hressandi að verða var við áræði og vongleði sem fylgdi opnun viðskiptastefnumóts á borð við sýningun. Þeir fiska sem róa – og hér hafa menn allar árar úti. Að loknum setningarræðum opnaði sjávarútvegsráðherra hátíðina með því að skjóta einu fallbyssuskoti úr 140 ára gamalli fallbyssu sem stóð fyrir utan Fífuna því næst var farið í skoðunarferð um sýninguna. Eftir opnun sýningarinnar klukkan 10 í morgun hefur verið stöðugur straumur gesta sem staðfestir þann gríðarlega áhuga sem fyrir henni er.
Til baka
|