YFIRLIT
FORSÍÐA
FÁ SENDAR UPPLÝSINGAR
SÝNINGIN
GÓLFPLAN
SÝNENDUR
UMSÓKN UM SÝNINGARRÝMI
VERÐLAUN
SÝNINGARHÓF
BÓKANIR
HÓTEL SKRÁNING
STAÐSETNING
MYNDIR FRÁ SÝNINGUNNI
TENGILIÐIR
RAFPÓSTUR
IN ENGLISH

 

STAÐSETNING

Sýningin er í Kópavogi mitt á milli hafnanna í Reykjavík og Hafnarfirði. Auðvelt aðgengi er að svæðinu og innan við tíu mínútna akstur. Nóg er af bílastæðum ásamt fjölda veitinga- og matsölustaða.

Frekari upplýsingar:

bjarni@icefish.is
mrasmussen@mercatormedia.com

Ferðaþjónusta

Ferðaskrifstofan Iceland Travel veitir hótelþjónustu og aðra aðstoð. Heimilisfangið er:

Iceland Travel,
ráðstefnudeild,
Skútuvogur 13A,
104 Reykjavík.
Vefsíða: www.icelandtravel.is

Tengiliðir:

Tinna Ýrr Arnardóttir
Senior Project Manager
Iceland Travel Conferences
Skútuvogi 13a
108 Reykjavík, Iceland

Email : tinna@icelandtravel.is
Tel : (+354) 585 4339
Fax : (+354) 585 4390

Jónbjörg Thórsdóttir
Project Manager
Iceland Travel Conferences
Skútuvogi 13a
108 Reykjavík, Iceland

Email : jonbjorg@icelandtravel.is
Tel : (+354) 585 4379
Fax : (+354) 585 4390

Icelandair sjá um flugþjónustu fyrir sýninguna. Upplýsingar um nálægustu skrifstofu Icelandair fást á vefsíðu flugfélagsins www.icelandair.is


Á miðju höfuðborgarsvæðinu

Bærinn milli flóanna

Kópavogur, sem er næstfjölmennasta bæjarfélag landsins, er frekar ungt að árum. Bærinn hefur vaxið hratt og er enn að vaxa því árlega er nýtt land tekið undir byggingar. Kópavogur er við hlið höfuðborgarinnar og tveir helstu vegir á Stór-Reykjavíkursvæðinu, Hafnarfjarðarvegur og Reykjanesbraut, liggja í gegnum Kópavog. Vesturhluti bæjarins er á Kársnesi. Norðan við það er Fossvogur og fyrir sunnan er Kópavogurinn. Austurhluti bæjarins er á Digraneshálsi og sunnan við hann er nýtt íbúðahverfi að rísa. Kópavogur skiptist í þrjá hluta og aðalhluti bæjarins austanmegin nær nú upp að Elliðavatni.

Listir og menning í Kópavogi

Sjálfstæð og lífleg menning blómstrar í Kópavogi þrátt fyrir nálægðina við Reykjavík, sem telst vera menningarmiðstöð landsins. Kópavogur rekur þrjár menningarstofnanir án fjárstuðnings ríkisins. Gerðarsafn, listasafn bæjarins, bókasafn Kópavogs og náttúrusögusafn. Menningarmiðstöð Kópavogs er nú í byggingu í hjarta bæjarins. Fyrsti hluti miðstöðvarinnar mun hýsa tónlistarskóla og tónleikasal.

Útivist og hreyfing:

Í Kópavogi eru mörg tækifæri til íþróttaiðkunar: gönguferðir, hestaferðir, sund, skíði, siglingar, skokk, tennis, boltaíþróttir og golf.