Að komast á sýningarstað
![]() |
Sýningarsvæðið er í Kópavogsdal, aðeins tíu mínútna akstur frá miðborginni, og þar er kappnóg af bílastæðum auk margra veitingastaða. Reglubundinn akstur verður á milli helstu hótela og sýningarmiðstöðvarinnar.
Boðið er upp á beint flug frá Íslandi til allra helstu borga Evrópu og Norður-Ameríku, þar með taldar París, Barcelona, Glasgow, Ósló, Stokkhólmur, Helsinki, Berlín, Amsterdam, Boston, New York, Orlando og Seattle, svo nokkrar séu nefndar.
Ferja Smyril Line, „Norræna”, siglir frá Danmörku um Færeyjar og kemur við í Seyðisfjarðarhöfn.
Icelandair og Flugfélag Íslands eru opinber flugfélög sýningarinnar. Upplýsingar um bókanir er að finna á www.icelandair.com og www.airiceland.is
|
Frá |
Flugtími |
|
Glasgow |
2 klst., 20 mín. |
|
London |
3 klst., 10 mín. |
|
Kaupmannahöfn / Amsterdam |
3 klst., 10 mín. |
|
Frankfurt / París |
3 klst., 30 mín. |
|
New York |
5 klst., 30 mín. |
|
Seattle |
7 klst., 30 mín. |









