Email email Print print

Íslenski markaðurinn

Fiskveiðar á Íslandsmiðum einkennast af því að notast er við háþróaðasta tæknibúnað sem völ er á og íslenski fiskveiðiflotinn er einn sá nýtískulegasti í heimi. Þetta gildir jafnt um siglingatækni og fiskileit sem þróun öflugari veiðarfæra. Radar, fiskileitartæki, GPS-staðsetningarbúnaður og tölvustýrð veiðarfæri eru staðalbúnaður í flestum fiskiskipum, jafnt stórum sem litlum. Undanfarin ár hefur eitt það athyglisverðasta í þróuninni verið að flotvörpur fara stöðugt stækkandi og að aukið vélarafl fiskiskipa gerir mönnum kleift að veiða dýpra með þeim. Umtalsverðar framfarir hafa líka orðið í tækniþróun annarra veiðarfæra, til dæmis botnvörpu, línu og handfæra.

 

Í lok árs 2009 var heildarfjöldi fiskiskipa alls 1582. Þar af voru 58 togarar,  834 þilskip stærri en 15 tonn og opnir bátar 756.

 

Afli árið 2009

Helstu tegundir

Þús. tonn

Þorskur

189

Ýsa

82

Ufsi

61

Karfi

58

Úthafskarfi

16

Grálúða

16

Steinbítur

15

Gulllax

11

Langa

10

Blálanga

4

Skötuselur

4

Kolategundir

12

Síld

331

Makríll

116

Kolmunni

120

Loðna

14

Rækja

5.5

Humar

2.5

Heildarafli

1,130

 

Útflutningur sjávarfangs árið 2009

Fiskveiðar í atvinnuskyni hafa undanfarin þrjú ár orðið stöðugt mikilvægari starfsgrein, ekki síst í framhaldi af efnahagskeppunni. Útflutningsverðmæti fisks og útvegstengdra afurða jókst um 99 milljarða króna og varð nær 209 milljarðar eða heil 42% af heildarverðmæti alls útflutnings.

   

     Billjónir ísl.kr.

  Hlutfall      af heild

Samtals

208,624

Þar af til EES-ríkja

164,137

79%

Stærstu ríki

Bretland

48,667

Noregur

20,731

Spánn

19,243

Holland

15,614

Frakkland

11,369

Þýskaland

10,380

Nígería

10,182

Bandaríkin

8,902

Japan

7,950

 

Stærstu kvótahafar 1. sept. 2010 á Íslandsmiðum

Fimm stærstu útgerðarfélögin eru handhafar 33% heildarkvótans, tíu stærstu ráða yfir 51% kvótans og tuttugu stærstu eru með 66% heildaraflaheimildanna (úthafskvóti er ekki meðtalinn).

More from Fyrir sýnendur...



Business News - Sign Up Today!

Email news News feeds
Magazines Networks