Meðmæli
Þetta segja sýnendur okkar um Íslensku sjávarútvegssýninguna:
„Íslenska sjávarútvegssýningin hefur allt frá upphafi árið 1984 verið helsti kynningarvettvangur Marels og íslensks sjávarútvegsiðnaðar. Þar gefst tækifæri til þerss að hittast, bæði á faglegum og félagslegum vettvangi og því er sýningin okkur svo mikilvæg sem raun ber vitni. Í núverandi kreppu er jafnvel enn mikilvægara að hittast og miðla reynslu sinni, ásamt því að kynna starfsgreininni nýja tækni." Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri alþjóðlegrar sölu- og þjónustudeildar Marels
„Hampiðjan hefur sýnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni síðan 1984 og lítur á hana sem sína mikilvægustu sýningu. Hún er alltaf vel skipulögð og bæði nýir og gamlir viðskiptavinir mæta þangað. Árið 2008 hlaut Hampiðjan verðlaunin „Framúrskarandi íslenskur framleiðandi - veiðar, stærri fyrirtæki". Við erum þakklát fyrir þennan heiður sem er hvatning til þess að standa sig enn betur til framtíðar litið. Við hlökkum til næstu sýningar og að hitta alla viðskiptavini okkar, bæði gamla og nýja. Við sjáumst þar öll!" Haraldur Árnason, sölu- og markaðsstjóri Hampiðjunnar
„Við höfum sýnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni síðan í upphafi árið 1984 og teljum hana í hópi mikilvægustu sýninga. Hún er úrvalsgóður vettvangur til þess að viðhalda sambandi við viðskiptavini og afla sér nýrra." Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Promens Dalvik ehf
„Þrátt fyrir dökkt útlit í fjármálum fékk Eltak margar pantanir á sýningunni árið 2008 og er enn að gera samninga við viðskiptavini sem komu á sýningarbásinn til þess að skoða vogir og flokkunarvélar frá Marel, skoðunarkerfi frá Loma í Bretlandi og pökkunarkerfi í neytendapakkningar frá Soco í Danmörku. Við vorum ánægð með sýninguna". Jónas Ágústsson, framkvæmdastjóri Eltaks







