Email email Print print

Um sýninguna

Íslenska sjávarútvegssýningin verður enn á ný haldin í Kópavogi dagana 25. til 27. september 2014, auk þess sem sjávarútvegsverðlaununum verður úthlutað.

Sýningin hefur verið haldin síðan 1984 á þriggja ára fresti til þess að koma til móts við óskir sýningaraðila. Þá er tryggt að þeir geti boðið upp á nýja tækni, vörur og þjónustu á hverri sýningu, þannig að sýningargestir vita að treysta má sýningunni til þess að halda þeim upplýstum um nýjustu þróun á markaði eins og hann leggur sig.

Sjávarútvegssýningin 2014 verður sú 11. í röðinni. Á sýningunni árið 2011 kom greinilega fram aukin bjartsýni eins og sást af því að margir sýnendur fengu umfangsmiklar pantanir og alls komu 13.547 gestir frá 52 löndum þannig að aðsóknin jókst um 9% miðað við sýninguna 2008. Árið 2011 varð einnig það nýmæli að samhliða sýningunni var haldin málstofa um umhverfismerkingar og rekjanleika með vinnuheitinu „Áætlun um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga". Hún er skipulögð af Íslandsstofu í samstarfi við Fiskifélag Íslands.

Íslenska sjávarútvegssýningin 2014 verður miklu umfangsmeiri en bara hefðbundin sýning. Undirbúningur ráðstefnu, 6. Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna, innlendra sendinefnda og heimsókna í verksmiðjur er nú í fullum gangi.

Sýningin mun enn á ný ná til allra hliða í sjávarútvegi og fiskvinnslu, allt frá veiðum og fiskileit til vinnslu og umbúða, markaðssetningar og dreifingar fullunninna afurða.

Hér er hægt að biðja um upplýsingar um hvaðeina það sem snertir sýninguna eða skipulag Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna.

RSS Feed RSS Icon