Email email Print print

Velasalan ehf

Vélasalan er þjónustufyrirtæki við sjávarútveginn á Íslandi og rekur verslun, rafeinda-og vélaverstæði að Klettagörðum 25, Reykjavík sem kalla mætti: Allt á einum stað,, eða eins og nefnt er á ensku: "One stop marine shop".Einnig hefur Vélasalan í gegn um tíðina haft á boðstólum búnað fyrir bændur, iðnað og þjónustufyrirtæki s.s bílalyftur, rafala og rafstöðvar fyrir bændur og varaaflstöðvar fyrir lyftur , tækni-og öryggisbúnað s.s. útsendingarbúnað RÚV, Íslenska Erfðagreiningu ofl. Vélasalan hefur flutt inn meira af rafstöðvum til bænda, vélum í skip og báta og haft milligöngu um smíði fleiri skipa og báta erlendis og breytingar og endurbyggingu skipa, en nokkurt annað einstakt fyrirtæki á landinu. Hvorki tala á rafstöðvum, vélum né skipum liggur fyrir með algjöri vissu. En skipin sem við sögu koma eru yfir 200, nýsmíðar og verkefni við breytingar á skipum. Vélar og rafstöðvar er miklu fleiri.Vélasalan ehf var stofnuð 1. júní 1940 af Gunnari Friðrikssyni og var fyrirtækið rekið af honum og hans fjölskyldu til ársins 2005 eða í 65 ár. Vélasalan stendur á gömlum merg og hefur átt viðskipti við flestar útgerðir landsins í yfir 70 ár. Hafa þau viðskipti gengið vel og áfallalaust. Fyrirtækið hefur umboð fyrir fjölmörg þekkt vöruverki á sviði útgerðar smærri og stærri skipa, fiskiskipa og skemmtibáta og býður upp á heildarlausnir á mörgum sviðum, ekki aðeins fyrir sjávarútveg heldur landbúnað og fleiri atvinnugreinar. Markmið fyrirtækisins er að viðskiptavinir þess þurfi ekki að leita annað.Vélasalan sér um sína. Gunnar Friðriksson átti að vísu ekki úr, þegar hann stofnaði Vélasöluna. Hann vissi engu að síður betur en flestir aðrir hvað tímanum leið og var fljótur að sjá tækifæri, ekki aðeins fyrir eigið fyrirtæki heldur einnig, fyrir íslenskan sjávarútveg og þar með þjóðfélagið í heild. Núverandi eigendur og stjórnendur Vélasölunnar vita líka vel hvað tímanum líður og eru reiðubúnir til að leggja sitt að mörkum til að stuðla áfram að framförum í íslensku atvinnulíf
Stand:
P12, O6
Company Name:
Velasalan ehf
Address:
Klettagardar 25
104 Reykjavik
Country:
Iceland
Phone:
+354 520 000
Fax:
+354 520 0020
Contact Name:
Kristjan Jonsson
Website Address:
www.velasalan.is
Email Address:
kjonsson@velasalan.is