Email email Print print

Maritech

Maritech er stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Maritech hefur þróað fjölda sérkerfa sem eru samhæfð lausnum Microsoft Dynamics NAV og má þá helst nefna lausnir á sviði sjávarútvegs, viðskiptagreindar, fjármála, verslunar og þjónustu, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga og flutninga. Wise lausnir innihalda lausnir fyrir sjávarútveginn og viðskiptagreind og eru byggðar ofan á staðlaðar lausnir s.s. fjárhag, birgðir, framleiðslu, viðskiptamenn og lánardrottna sem sparar vinnu við þróun lausnanna og gerir þær bæði ódýrari og einfaldari. WiseFish hugbúnaðurinn spannar lausnir fyrir alla virðiskeðjuna og inniheldur: Gæðastjórnun, Fiskeldi, Útgerð og kvóta, Vinnslu, Birgðir og vöruhús og Sölu og útflutning. Með lausnunum gefst kostur á góðri yfirsýn á birgðum og stöðu þeirra í rauntíma, nákvæmar upplýsingar um kostnað og verðmæti á öllum stigum vinnslunnar, sjálfvirkni í skráningum og fullkomnum rekjanleika vöru og skjala fyrir útflutning. Wise útflutningskerfi Maritech gerir fyrirtækjum kleift að sjá um tollafgreiðslu, skráningu og skjölun til útflutnings á rafrænu formi. Maritech er Microsoft Gold Certified Partner, ásamt því að vera Samstarfsaðili ársins hjá Microsoft á Íslandi árin 2010 og 2011 og Fyrirmyndarfyrirtæki VR undanfarin ár. Hjá Maritech starfar metnaðarfullur hópur starfsfólks og fyrirtækið þjónustar um 500 viðskiptavini um allan heim. Microsoft Íslandi mun deila bás með Maritech á sýningunni (bás H21) og kynna nýja og spennandi útgáfu af Microsoft Dynamics NAV og öðrum tengdum lausnum. Einnig verða sýndar tengingar frá Microsoft Dynamics NAV við nýja útgáfu af CRM og nytsamleg kerfi í sjávarútveginum, handtölvur, skanna, stjórnendalausnir og farsímalausnir.

Stand:
H21
Company Name:
Maritech
Address:
Borgartun 26
105 Reykjavik
Country:
Iceland
Phone:
+354 545 3200
Fax:
+354 545 3201
Contact Name:
Iris Magnusdottir, Jon Heidar Palsson
Website Address:
www.wise.is
Email Address:
irism@maritech.is, jhp@maritech.is