Email email Print print

Tandur hf

Tandur hf. býður fyrirtækjum í fiskiðnaði mikið úrval af hreinsiefnum og öðrum hreinlætisvörum. Við leggjum mikla áhersla á íslenska vöruþróun og framleiðslu hreinsiefna og flest af þeim kvoðu- og sótthreinsiefnum sem fyrirtækið býður eru afrakstur eigin vöruþróunar. Á Sjávarútvegssýningunni 2008 kynntum við alveg nýja gerð kvoðuefna s.k. gel-kvoðuhreinsiefni. Gel-kvoðuefni hafa ýmsa eiginleika umfram hefðbundin kvoðuefni eins og lengri viðloðunartíma sem aftur leiðir til öflugri hreinsunar og betri nýtingar á efninu. Núna 2011, munum við m.a. kynna nýtt gelkvoðuefni sem tærir ekki léttmálma eins og ál. Við bjóðum einnig fjölbreytt úrval af öðrum hreinlætisvörum. Má þar nefna VIKAN hreinsiáhöld, einnota hlífðarfatnað, pappírsvörur, plastpoka, ýmsar ræstivörur ofl. Einnig bjóðum við sérhæfðan skömmtunarbúnað fyrir matvælaiðnað. Við sjáum um uppsetningu á slíkum búnaði og leggjum í því sambandi mikla áherslu á rétta skömmtun hreinsiefna. Þjónustuaðilar okkar sjá um að mæla styrk hreinsiefna í kvoðu- og CIP kerfum og stilla búnaðinn eftir því sem þarf. Við höfum áralanga reynslu í gerð hreinlætisáætlana og tæknilegri ráðgjöf varðandi hreinlæti í fiskiðnaði. Mörg af stærslu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum landsins eru í viðskiptahópi Tandurs.
Stand:
P66
Company Name:
Tandur hf
Address:
Hesthals 12
110 Reykjavik
Country:
Iceland
Phone:
+354 510 1200
Fax:
+354 510 1201
Contact Name:
Mr Birgir Gudmundsson
Website Address:
www.tandur.is
Email Address:
birgir@tandur.is