Email email Print print

Akor ehf

Akor ehf. leggur mikla áherslu í að bjóða viðskiptavinum gæða vörur á góðu verði. Mælibúnaður: AKOR ehf. býður fjölbreytilega og breiða línu af mælibúnaði eins og rennslismælum og tankmælikerfi. Helstu birgjar AKOR ehf. á þessu sviði eru KROHNE í þýskalandi og PSM í Englandi. KROHNE var stofnað árið 1921 og er með framleiðslu í 10 löndum og starfsstöðvar í yfir 40 löndum í dag. PSM býr yfir meira en þrjátíu ára reynslu á þessu sviði. Þekktustu lausnir frá PSM eru á sviði tankmælinga og þá sérstaklega fyrir skip og báta. Í því samhengi er vert að benda á kröfuharða viðskiptavini eins og t.d. breska, ástralska og norska sjóherinn. Ljósabúnaður: AKOR ehf. býður einnig uppá fjölbreytilega og breiða línu af hágæða ljósabúnaði fyrir skip frá Tranberg a/s. TRANBERG var stofnað árið 1901 og býr því yfir eitt hundrað ára reynslu á þessu sviði. Gæði og áreiðanleiki eru alltaf höfð fremst í forgangsröð við framleiðslu á vörum frá Tranberg enda er Tranberg eini framleiðandinn sem býður 20 ára ábyrgð á siglingaljósum eins og lanternum úr kopar. Tranberg er með lausnir fyrir allflest er tengist lýsingu á skipum eins og siglingaljós, vinnuljós / dekkljós, leitarljós / ljóskastarar, stjórnborð (control panel) fyrir öll ljós og annan tengdan búnað. Akor ehf. býður díóðuljós frá LEDFO sem eru sérstaklega gerð fyrir norðlægar aðstæður. Þar hafa röraperurnar og dekkljósin vakið mikla athygli enda mikill fjárhagslegur ávinningur þegar orkugjafinn er dýr. Komin er breið lína af ljósabúnaði fyrir flestar aðstæður eins og skip, vöruhús, jarðgöng, götulýsing, hafnarsvæði, verksmiðjur og vinnslur svo eitthvað sé nefnt. Upplýsingakerfi CATSAT er hafupplýsingakerfi frá CSL í Frakklandi, þar sem kjölfestan er hafstraumamódel sem byggir á fjölþættum upplýsingar m.a. frá gervihnöttum og sérstökum mælibaujum sem eru á reki um öll heimsins höf. Með CATSAT má finna skilyrði til veiða í formi hæðarmælinga, hita, strauma, átu (plankton), vinda og margt fleira. CATSAT leggur mikla áherslu á skilning og þekkingu notenda. CATSAT hefur þegar sannað sig á sviði uppsjávarveiða um allan heim enda kerfið notað á heimsvísu með frábærum árangri.
Stand:
P35
Company Name:
Akor ehf
Address:
Mlidasmara 10
210 Kopavogur
Country:
Iceland
Phone:
+354 517 2255
Fax:
+354 517 2256
Contact Name:
Johann H Bjarnason
Website Address:
www.akor.is
Email Address:
johann@shipequip.is