Email email Print print

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2011

Icelandic Fisheries Awards winners 2008

Icelandic Fisheries Awards winners 2008

22. september 2011 í Gerðarsafni, Kópavogi

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn kvöldið sem sýningin verður opnuð. Um er ræða standandi móttöku sem hefst strax að sýningu lokinni á fyrsta degi. Athöfnin fer á ný fram í listasafninu glæsilega, Gerðarsafni sem er í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá sýningarstað. Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1999 til þess að heiðra afburði og vekja athygli á því besta á sviði fiskveiða, bæði á Íslandi og alþjóðlega. Hróður verðlaunanna hefur aukist með árunum og nú er litið á það sem mikið hrós að hljóta þau, hrós sem kemur að góðu gagni við kynningu á viðkomandi fyrirtæki og vöru.

Nánari upplýsingar um dagskrá Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna 2011 liggja brátt fyrir. Hægt er að biðja um nánari upplýsingar með því að smella hér.

Vinningshafar Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna 2008

Framúrskarandi íslenskur skipstjóri:
Kristbjörn Árnason

Framúrskarandi íslensk útgerð:
Bergur-Huginn

Framúrskarandi íslensk fiskvinnsla:
Skinney-Þinganes

Framúrskarandi framlag til íslensks sjávarútvegs:
Kristján Ragnarsson fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna

Framúrskarandi íslenskur framleiðandi - veiðar, minni fyrirtæki:
Naust Marine

Framúrskarandi íslenskur framleiðandi - veiðar, stærri fyrirtæki:
Hampiðjan

Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – fiskvinnslutæki/fiskmeðhöndlun, minni fyrirtæki:
Valka

Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – fiskvinnslutæki/fiskmeðhöndlun, stærri fyrirtæki:
3xTechnology

Framúrskarandi erlendur framleiðandi - veiðar, minni fyrirtæki:
Electronic Navigation

Framúrskarandi erlendur framleiðandi - veiðar, stærri fyrirtæki:
Furuno

Framúrskarandi erlendur framleiðandi – fiskvinnslutæki/fiskmeðhöndlun, minni fyrirtæki:
Exos AB

Framúrskarandi erlendur framleiðandi - fiskvinnslutæki/fiskmeðhöndlun, stærri fyrirtæki:
Ishida Europe

Framúrskarandi framleiðandi í heildina séð:
Hampiðjan



Business News - Sign Up Today!

Email news News feeds
Magazines Networks