Ráðstefna
New Seminar to be held alongside IFE
Áætlun um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Sífellt strangari kröfur eru gerðar til ábyrgra fiskveiða á alþjóðavettvangi, hjá alþjóðastofnunum og meðal kaupenda sjávarafurða. Upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir og vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga er markaðstæki sem gefur framleiðendum og seljendum íslenskra sjávarafurða tækifæri til að staðfesta frumkvæði sitt í að mæta kröfum markaðarins með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi.
Iceland Responsible Fisheries (IRF) efnir til umræðu um ábyrgar fiskveiðar og markaðssetningu undir merkjum IRF. Fundurinn er haldinn samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi 22. september kl. 15. Fjallað verður um þróun markaða (trends) og áherslur í markaðssetningu erlendis; reynslu af mismunandi áherslum í markaðssetningu og gildi þess að kynna uppruna sjávarafurða frá Íslandi. Nánari upplýsingar má nálgast á www.ResponsibleFisheries.is eða hjá Guðnýju Káradóttur, markaðsstjóra IRF hjá Íslandsstofu, gudny@islandsstofa.is.







