Email email Print print

Um sýninguna

Íslenska sjávarútvegssýningin var fyrst haldin árið 1984 og hefur rúmlega tvöfaldast að umfangi síðan þá. Hún er haldin á þriggja ára fresti í beinu samræmi við óskir sýnenda, þannig er tryggt að þeir geta alltaf kynnt nýjar vörur á hverri sýningu.

Sýningin gekk vel árið 2008, jafnvel þótt hún væri haldin rétt í byrjun hrunsins. Nær 500 fyrirtæki frá 33 löndum sýndu og alls mættu 12.429 gestir frá 50 löndum, þar með taldir 75 VIP-gestir og sendinefndir frá Kanada og Ekvador.

Sýnendur voru svo ánægðir með VIP-sendinefndirnar 2008 að skipuleggjandinn Mercator Media Limited hyggst auka við það tilboð árið 2011 með nánu samstarfi við sýnendur og helstu samtök á Íslandi til þess að tryggja að lykilmenn greinarinnar komi.

Árið 2011 verður einnig það nýmæli að samhliða sýningunni er haldin málstofa um umhverfismerkingar og rekjanleika með vinnuheitinu „Áætlun um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga". Hún er skipulögð af Íslandsstofu í samstarfi við Fiskifélag Íslands.

Sýningin nær til allra þátta í fiskveiðum í atvinnuskyni, allt frá veiðum og fiskileit til vinnslu og pökkunar, markaðsetningar og dreifingar á fullunnum afurðum.

Hægt er að biðja um upplýsingar um alla þætti ráðstefnunnar með því að smella hér

RSS Feed RSS Icon

Business News - Sign Up Today!

Email news News feeds
Magazines Networks